Upplýsingar frá Mænuskaðastofnun Íslands

Eins og ýmsum er kunnugt samþykkti Norðurlandaráð íslenska tillögu um mænuskaða á þingi sínu í nóvember sl.

Efni tillögunnar var að ráðið setti á laggirnar starfshóp lækna og vísindamanna með það hlutverk að skoða þá vísindaþekkingu á mænunni sem nú er til staðar og skoða hvort mögulegt væri að samþætta hana svo að leggja mætti skipulagðan grunn að þróun lækningastefnu fyrir mænuskaða. Þessi góði árangur náðist vegna ötullar vinnu og samstöðu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, forsætisráðherra og 8.500 íslenskra kvenna sem rituðu nöfn sín í bænaskrá sem Siv Friðleifsdóttir formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs afhenti forseta ráðsins með glæsibrag á þinginu. 

Ferlið og þáttur velferðarráðuneytis
Ferlið hjá Norðurlandaráði gengur þannig fyrir sig að nú mun embættismannanefnd ráðsins taka við. Hennar hlutverk er að skoða þær tillögur sem Norðurlandaþingið samþykkti í nóvember og bera fram tillögur til ráðherranefndar Norðurlandaráðs um hvernig samþykktum tillögunum verði best komið í framkvæmd. Tillaga um mænuskaða er þar innifalin. Í ferlinu mun velferðarnefnd Norðurlandaráðs fylgjast með afdrifum sinnar tillögu. Auk þess eiga sæti í embættismannanefndinni tveir embættismenn úr íslenska velferðarráðuneytinu ásamt því sem íslenski velferðarráðherrann á sæti í norrænu ráðherranefndinni um velferðarmál. Mænuskaðatillögunni ætti því ekki að verða í kot vísað.


Þáttur forsetans og utanríkisráðuneytis
Fyrir nokkru heimsótti Ísland Jean Todt, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FÍA). Tilgangur ferðar hans var að vekja athygli forseta Íslands og íslenskra stjórnvalda á átaki Sameinuðu þjóðanna gegn umferðarslysum sem standa mun yfir næsta áratug. Á fundi hans með forsetanum áttaði hinn glöggi forseti okkar sig strax á samhengi átaksins og mænuskaða en nær helmingur þess fólks sem hlýtur mænuskaða í slysum og lamast, hlýtur skaðann í umferðarslysum. 

Forsetinn leitaði því eftir við Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) að félagið kæmi á sambandi mínu og forseta FÍA sem gert var, en FÍB er öllum hnútum kunnugt innan FÍA og ríkir þar á milli mikill vinskapur. Í framhaldi af þessu hefur bæði forsetinn og sendiherra okkar í París haft samband við aðila innan FÍA og leitað eftir að félagið styðji væntanlegar framkvæmdir Norðurlandaráðs um mænuskaða. Svör FÍA við þeirri bón hafa verið jákvæð. Á þessari stundu er ekki mögulegt að segja í hverju stuðningur FÍA verður fólginn en það mun væntanlega skýrast á árinu 2012.


Þakkir til Íslendinga
Það væri ómetanlegt ef okkur Íslendingum auðnaðist að eiga frumkvæði að því að tvær sterkar alþjóðastofnanir, Norðurlandaráð og FÍA, tækju höndum saman og hrintu af stokkunum átaki í þágu lækninga á mænuskaða. Sú er mín tilfinning að þá myndu stórstígar framfarir verða á sviðinu og ekki veitir af. Með samþykkt Norðurlandaráðs og jákvæðu viðhorfi FÍA erum við nú þegar komin rúmlega hálfa leið í þeim efnum.

Að endingu vil ég þakka Íslendingum fyrir ómetanlegan stuðning við hugsjón mína og vona að þessi mikla barátta til breytinga á viðhorfi til meðhöndlunar á mænuskaða eigi eftir að koma öllu mannkyni til góða og færa Íslandi heiður heim í tímans rás.


SCI auglýsing uþb. 6,9 MB  00:00:48
Tónlist: Sigur Rós
Brúða: Bernd Ogrodnik
Auglýsingastofa: Fíton
Framleiðsla: Sagafilm

Smelltu hér til að finna útgefið myndefni Mænuskaðastofnunar

 Arabic  Þulur: Nabeeh Naimi
 Bulgarian Þulur: Diana Rouseva
 Chinese Þulur: wangliangzhao
 Danish Þulur: Ari Rafn Sigurðsson   
 Estonian Þulur: Lemme Linda Saukas
 English Þulur: Neil McMahon
 Faroese Þulur: Jogvan Hansen 
 Finnish Þulur: Virpi Jokinen
 French Þulur: Vincent Holard
  German Þulur: Helmut Hinrichsen 
 Greek Þulur: Kostas Velegrions
  Hungarian Þulur: Daniel Bardits
  Icelandic Þulur: Egill Ólafsson
 Indonesian Þulur:Dyah Anggraini
 Italian Þulur: Marcello Viola
  Japanese Þulur: Toshiki Toma
  Latvian Þulur: Ance Lauksteina
 Lithuanian Þulur: Viktorija Ólafsson
  Norwegian Þulur: Barbro E. Lundberg 
 Nepalese Þulur: Janak Kumar
 Polish Þulur: Witek Bogdanski
 Portuguese Þulur: Inacio Pacas Da silva Filho
 Romanian Þulur: Florin Mera
 Russian Þulur: Maria Shukurova 
 Serbian Þulur:Vesna Jesic Daníelsson
 Spanish Þulur: Edna Mastache
 Swedish Þulur: Matilda Gregersdotter
 Thai Þulur:Bolli Surasak Poonklang
 Turkish Þulur: Múrat Özkan