2.7.2011
Nú í júlí og ágúst er auglýsing Mænuskaðastofnunar Íslands, Lamaða Strengjabrúðan, sýnd á skjá í Leifsstöð. Auglýsingin er sýnd á þremur tungumálum, ensku,þýsku og dönsku. Markmiðið með sýningunni er að vekja athygli á mænuskaða og á framlagi Íslands til sameiginlegrar lausnar á því alvarlega alþjóðlega heilbrigðisvandamáli sem mænuskaði er.
nánar
27.6.2011
Umferðarslys voru meðal umræðuefna á fundi norrænna velferðarráðherra í síðustu viku. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði í ræðu sinni á fundinum að umferðarslys séu ein höfuðorsök meiðsla, sér í lagi hjá ungu fólki.
Hann sagði að í tengslum við alheimsátak Sameinuðu þjóðanna gegn umferðarslysum hefði Ísland, eins og önnur lönd, skuldbundið sig til að gera ráðstafanir sem leiða til fækkunar umferðarslysa.
nánar
9.3.2011
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fela utanríkis-, velferðar- og innanríkisráðherrum að kanna hvernig Ísland getur stuðlað að vitundarvakningu á alþjóðavettvangi vegna mænuskaða.
nánar
28.1.2011
Velferðarnefnd Norðurlandaráðs samþykkti á miðvikudag tillögu Íslandsdeildar Norðurlandaráðs um samhæfðar upplýsingar á Norðurlöndum um mænuskaða.
Tillagan fjallar um að fela nefnd sérfróðra vísindamanna og lækna að safna upplýsingum og gera yfirlit yfir norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir við mænuskaða, í formi skýrslu, og gera tillögur um úrbætur um rannsóknir og meðferðir á mænuskaða.
nánar
21.11.2010

Á fundi Norðurlandaráðs sem haldinn var á íslandi 2. -4. Nóvember 2010 kynnti Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs eftirfarandi tillögu: Íslandsdeild Norðurlandaráðs leggur til við Norðurlandaráð að það beini þeim tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar að fela nefnd sérfróðra vísindamanna og lækna að safna upplýsingum og gera yfirlit yfir norrænar og aðrar rannsóknir og meðferðir við mænuskaða í formi skýrslu og gera tillögur um úrbætur um rannsóknir og meðferðir á mænuskaða.
nánar
2.10.2010
Á meðan á Norðurlandaþinginu 2010 stóð vakti Mænuskaðastofnun Ísland athygli á að Íslandsdeild Norðurlandaráðs hafi kynnt tillögu um mænuskaða á þinginu. Í því tilefni var sjónvarpsauglýsingin – Lamaða strengjabrúðan – á 29 tungumálum, sýnd á skjá í 2 daga. Dreift var 330 eintökum af „flyers“ þar sem Norðurlandaráð var hvatt til að samþykkja tillöguna. Einnig var dreif 250 gestaþrautum með áletruninni: Mænan er ráðgáta – en saman getum við leyst hana.
nánar
18.9.2010
Í september sl. sýndi ungverska ríkissjónvarpið myndina Hvert örstutt spor ( You will never walk again). Af því tilefni fór Auður Guðjónsdóttir stjórnarformaður ISCI í viðtal hjá sjónvarpinu, þar sem hún vakti m.a. athygli á nauðsyn þess að þjóðir heims tækju höndum saman svo lækning fyndist við mænuskaða.
nánar
14.9.2010
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO sem nú stendur yfir í Moskvu, afhenti Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu Szuszanna Jakab yfirmanni WHO/EURO disk með auglýsingunni: Lamaða strengjabrúðan.
Auglýsingin er á 29 tungumálum. Mænuskaðastofnun Íslands framleiddi diskinn, en hlutverk stofnunarinnar er að vekja athygli á mænuskaða á alþjóðavísu og hvetja þjóðir heims til að taka höndum sama svo að lækning finnist.
nánar